Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa verið starfrækt frá árinu 1969.
Markmið SSV er m.a. að:
- vinna að hagsmunum svietarfélaganna á Vesturlandi, einkum í atvinnu-, efnahags-, mennta-, skipulags-, samgöngu- og félagsmálum.
- efla samstarf sveitarfélaganna og auka kynningu sveitarstjórnarmanna.
- styrkja þjóðfélagslega aðstöðu landshlutans.
Samtökunum er ætlað að starfa í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga eftir því sem við verður komið.
SSV rekur ráðgjafa- og þróunardeild.
Samkvæmt samningi milli SSV og Byggðastofnunar rekur SSV ráðgjafa- og þróunardeild. Gildandi er samningur sem hefur þau markmið að:
- stuðla að jákvæðri þróun atvinnulífs á starfssvæði félagsins.
- bæta almenn búsetuskilyrði á starfssvæði félagsins.
- byggja upp og miðla þekkingu, reynslu og hæfni á sviði atvinnu- og byggðaþróunar milli Byggðastofnunar og SSV.
- Byggðastofnun og aðrar stofnanir í stoðkerfi atvinnuþróunar hafi sem öflugastan samstarfsaðila á starfssvæði félagsins.
Forsendur.
Forsendur samningsins eru "Lög um Byggðastofnun 199 nr. 106" og "Reglugerð um Byggðastofnun 16. maí 2000"
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
Bjarnarbraut 8
310 Borgarnesi
sími: 437 1318
fax: 437 1494
tp: ssv@ssv.is
Kt.: 610673-0239